Ræst verður í fjöru siglingaklúbbsins Sæfara á Ísafirði, rétt við hliðina á Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað. Komið verður fyrir baujum sem merkja keppnisleiðina. Synt verður út frá aðstöðu Sæfara og að bauju sem er í 250m fjarlægð. Synt sömu leið til baka.

Kayakar og kafarar verða á staðnum og fylgja keppendumm en einnig motorbátur frá Björgunarfélaginu.

Við tímatöku verður notast við flögukerfi og þurfa keppendur að festa flöguna við hægri fót sinn. Þeir sem taka þátt í þríþrautinni nota sömu flögu í allri þrautinni og því verða þeir að passa vel upp á flöguna sína.

Ekki verður hægt að nálgast gögn á staðnum og er því keppendum bent á að ná í gögnin sín áður.

Rástími

  • kl 16.00 í fjörunni við siglingaklúbbsins Sæfara á Ísafirði, rétt við hliðina á Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað
  • Búningsaðstaða er við startið en leyft er að synda í blautbúningi. Keppendur fá hressingu eftir keppnina og komast í sturtu í aðstöðu Sæfara við markið
  • Keppendum bent á að mæta tímanlega, ekki seinna en 15:30

Aldurstakmörk

  • 16 ára

Næring

  • Keppendum verður boðið upp á hressingu að sundi loknu
  • Drykkir frá Ölgerðinni og vatn